SriChinmoy.org
is More about Sri Chinmoy
x

Sri Chinmoy setrið

Þú getur breytt lífi þínu. Þú þarft ekki að að bíða árum eða jafnvel mánuðum saman með þessa breytingu. Hún byrjar um leið og þú hellir þér út í andlega viðleitni. Reyndu að lifa andlega öguðu lífi í einn einasta dag. Þér mun örugglega takast það.

Sri Chinmoy

Nemendur Sri Chinmoy hafa stofnað setur víðsvegar um heiminn, m.a. á Íslandi. Setrið er nokkurs konar andlegt heimili fyrir meðlimina þar sem þeir koma saman til hugleiðslu og bæna og hlýða á andlega tónlist. Setrið er líka virkur fulltrúi kenninga Sri Chinmoy með námskeiðshaldi og öðrum uppákomum fyrir almenning.

Ókeypis hugleiðslunámskeið

Sri Chinmoy setrið er í fararbroddi varðandi námskeiðshald í hugleiðslu á heimsvísu. Að ósk Sri Chinmoy er boðið upp á námskeiðin án endurgjalds, af þeirri sannfæringu að andlegt líf sé réttur hvers manns og geti aldrei gengið kaupum og sölum. Meira en 10.000 manns hafa sótt námskeiðin okkar á Íslandi.

Hafi vaknað áhugi hjá þér að læra hugleiðslu, vinsamlegast hafðu þá samband við okkur á hugleidsla.org.

Tónleikar og menningarviðburðir

Setrið hefur einnig staðið fyrir sýningum fyrir almenning á andlegum listaverkum, tónleikum og ljóðalestri svo eitthvað sé nefnt.

Tonleikar af systkinahópnum Blossoms á Akureyra

Íþróttir

Sri Chinmoy hvatti nemendur sína til að stunda íþróttir sem hluta af sínu andlega lífi. Við hlaupum oft saman og höldum óformlegt tveggja mílna kapphlaup kringum Reykjavíkurtjörn alla laugardagsmorgna.

Við höfum einnig skipulagt Vatnsmýrarhlaupið árlega en það er 5 km hlaup.

Fyrirtæki á vegum nemenda

Hljóðfærabúðin Sangitamiya

Sri Chinmoy hvatti nokkra af nemendum sínum til að stofna fyrirtæki. Í þessum fyrirtækjum er útgangspunkturinn ekki fjárhagslegur hagnaður heldur þjónusta við viðskiptavinina. Sri Chinmoy gaf þessum fyrirtækjum nöfn sem endurspegla þær andlegu hugsjónir sem leið hans byggir á.

Einstaklingar í Sri Chinmoy setrinu á Íslandi hafa opnað Kaffihúsið Garðinn (Ecstasy´s Heart-Garden) og hljóðfæraverslunina Sangitamiya á Klapparstíg.

Video
Sri Chinmoy fer í heimsókn á Kaffihúsið Garðinn árið 2000

Saga setursins á Íslandi

  • 1973 Fyrsti fyrirlesturinn um heimspeki Sri Chinmoy
  • 1974 Fyrirlestur Sri Chinmoy í Háskóla Íslands
  • 1975 Fyrsta bókin eftir Sri Chinmoy í íslenskri þýðingu
  • 1975 Fyrirlestrar Sri Chinmoy í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Borgarbíói á Akureyri
  • 1985 Sænski tónlistarhópurinn Akasha hélt tónleika í Tónskóla Sigursveins, Reykjavík
  • 1987 Setrið stóð fyrir 7 mínútna friðarstund í samstarfi vð aðra friðarhópa
  • 1987 Friðarhlaupið fer sína fyrstu ferð hringinn í kringum Ísland. Síðan þá hefur verið hlaupið hringinn í kringum Ísland með logandi friðarkyndilinn árin 1989, 1998, 1999, 2005, 2006, 2009, 2011, 2013 og 2015, auk smærri Friðarhlaupa og einstakra viðburða.
  • 1987-1988 Setrið stóð fyrir útvarpsþætti
  • 1988 Friðartónleikar Sri Chinmoy í Háskólabíói
  • 1988 Setrið gaf út plötuna Mantric Flowers
  • 1989 Sri Chinmoy hélt Friðartónleika í Langholtskirkju
  • 1993 Reykjavík tileinkuð sem friðarhöfuðborg og Mosfellsbær, Garðabær, Kópavogur og Hafnarfjörður tileinkaðir friðarbæir
  • 1993 Vasa útgáfan gaf út Andlát og endurholdgun og Hugleiðsla: spurningar og svör eftir Sri Chinmoy
  • 1994 Sri Chinmoy maraþonliðið á Íslandi hóf 5 km hlaup sem hefur verið í gangi ár hvert síðan
  • 1995 Vasaútgáfan gaf út Friður á jörðu
  • 1995 Vasaútgáfan gaf út Móðuraflið - Kundalini jóga
  • 1997 Setrið gaf út plötuna Power and Peace
  • 1997 Söngvarar úr setrinu sungu fyrir framan allar kirkjur í Reykjavík í minningu móður Teresu
  • 1998 Setrið skipulagði sýningu á friðarteikningum barna í Kringlunni
  • 1998 Setrið hóf að gróðursetja tré með það fyrir augum að gróðursetja 27.000 tré til að halda upp á lúkningu Sri Chinmoy á 27.000 ljóðum í röðinni 27.000 Aspiration Plants
  • 1999 Ísland var útnefnt Sri Chinmoy friðarland
  • 1999 Heilsubúðin Góð heilsa, gulli betri (Health, the richest wealth) var opnuð
  • 2000 Kaffihúsið Garðurinn (Ecstasy´s Heart-Garden) var opnað
  • 2000 Sri Chinmoy hélt Friðartónleika í Háskólabíói
  • 2001 Sýning á myndlist Sri Chinmoy í Ráðhúsi Reykjavíkur
  • 2005 Hljóðfæraverslunin Sangitamiya opnuð
  • 2010 Tónleikar ensku hljómsveitarinnar Temple-Song-Hearts í Fríkirkjunni í Reykjavík
  • 2011 Setrið skipuleggur tónleika hins þekkta rússneska tónlistarmanns Purushottama Boris Grebenshikov í Reykjavík þar sem margir tónlistarmenn í alþjóðlega Sri Chinmoy setrinu taka þátt
  • 2011-2013 Friðartré gróðursett í nær öllum sveitarfélögum á Íslandi í tengslum við Friðarhlaupið.
  • 2011 Sýning á kvikmyndinni Challenging Impossibility um lyftingar Sri Chinmoy, sem og sýning á þeim búnaði sem hann notaði við lyftingarnar
  • 2011 Alþjóðlegi sönghópurinn Oneness-Dream stofnaður af Snatak Matthíassyni frá Íslandi og heldur í sína fyrstu söngferð um Ísland
  • 2012 Tónleikar Songs of the Soul, alþjóðlegrar tónleikaraðar til heiðurs tónlist Sri Chinmoy, haldnir í Hörpu
  • 2012 Friðarhlaupið heimsækir Færeyjar í fyrsta sinn og svo aftur árin 2014 og 2017.
  • 2014 Tónleikar í tilefni 40 ára afmælis fyrstu heimsóknar Sri Chinmoy til Íslands
  • 2015 Songs of the Soul tónleikar haldnir í Reykjavík og á Akureyri
  • 2015 Nirbhasa Magee, meðlimur íslenska setursins, lýkur lengsta götuhlaupi heims - Sri Chinmoy 3100 Mile Race. Hann hefur lokið því fjórum sinnum milli áranna 2015 og 2020.
  • 2016 Tónleikar svissnesku hljómsveitarinnar Celestial Ground í Reykjavík
  • 2016 Friðarhlaupið heimsækir Grænland. Nuuk er tileinkuð Sri Chinmoy friðarhöfuðborg

  • 2017 Stuttmyndin Seeker, um Snatak úr setrinu og baráttu hans við taugasjúkdóminn MND, er frumsýnd á RIFF kvikmyndahátíðinni

Video

  • 2017 Tónleikar Blue Flower í Fríkirkjunni í Reykjavík
  • 2018 Setrið gefur út plötuna Many Many Lives Ago
  • 2019 Tónleikar búlgörsku hljómsveitarinnar Inspiration-Flames í Fríkirkjunni í Reykjavík
  • 2020 Suballabha, meðlimur íslenska setursins, gefur út plötuna My Gratitude-Heart